Home About us Products Services Contact us Bookmark
:: wikimiki.org ::
Febrúar

Febrúar

Febrúar er annar mánuður ársins og er nefndur eftir Februus, rómverskum guði hreinleika. Í febrúar eru 28 dagar, 29 ef það er hlaupár.

Hátíðisdagar


- Valentínusardagur (14. febrúar)

Veðurfar á Íslandi í febrúar

Reykjavík

- Meðalhiti 0,5°C
- Úrkoma 81,8mm
- Sólskinsstundir 111,1 Akureyri

- Meðalhiti -1,5°C
- Úrkoma 42,5mm
- Sólskinsstundir 36,0 Æðey (Ísafjarðardjúpi)

- Meðalhiti -1,4°C
- Úrkoma 49,1mm
- Sólskinsstundir NA Dalatangi (Austfjörðum)

- Meðalhiti 0,6°C
- Úrkoma 102,7mm
- Sólskinsstundir NA Stórhöfði (Vestmannaeyjum)

- Meðalhiti 2,0°C
- Úrkoma 139,1mm
- Sólskinsstundir NA

Heimildir


- [http://www.vedur.is/vedurfar/yfirlit/med6190.html Veðurfarsupplýsingar af vef Veðurstofu Íslands sem sýna meðaltöl áranna 1961-1990] Flokkur:Febrúar ja:2月 ko:2월 ms:Februari simple:February th:กุมภาพันธ์

14. febrúar

14. febrúar er 45. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 320 dagar (321 á hlaupári) eru eftir af árinu.

Atburðir

Fætt

Dáið


- 1779 - James Cook, breskur landkönnuður og kortagerðarmaður (f. 1728).

Flokkur:Febrúar ja:2月14日 ko:2월 14일 nb:14. februar simple:February 14 th:14 กุมภาพันธ์

Ísland

Lýðveldið Ísland er landamæralaust land í Norður-Atlantshafi staðsett norðvestur af Færeyjum milli Grænlands og Skotlands.

Saga

Ísland var, samkvæmt Íslendingabók Ara fróða, fyrst numið af norskum og keltneskum (skoskum og írskum) landnemum undir lok níundu og tíundu aldar. Þar var næstelsta (og það elsta sem enn er starfandi), þjóðþingið, Alþingi, stofnað árið 930. Ísland var ekki sett undir erlend ríki fyrr en næstum fjórum öldum eftir að það var fyrst numið. Þá fór svo að Noregskonungur náði landinu undir sína krúnu (1262). Síðar varð Ísland svo hluti af danska ríkinu árið 1380. Ísland fékk stjórnarskrá og takmarkaða heimastjórn árið 1874 á þjóðhátíð í tilefni af 1000 ára afmæli Íslandsbyggðar (þar sem núverandi þjóðsöngur landsins, Lofsöngur var frumfluttur), fullveldi fylgdi í kjölfarið árið 1918. Danski konungurinn var áfram þjóðhöfðingi til ársins 1944, þegar lýðveldið var stofnað.

Stjórnmál

Ísland er lýðveldi með þingbundinni stjórn. Framkvæmdavaldið liggur hjá forseta og ríkisstjórn. Æðsti maður ríkisstjórnar er forsætisráðherra. Ríkisstjórnin ber ábyrgð gagnvart Alþingi, sem er handhafi löggjafarvaldsins. Dómsvald er í höndum dómstóla; æðsti dómstóll landsins er Hæstiréttur. Forseti Íslands er þjóðhöfðingi landsins og er þjóðkjörinn í beinni kosningu allra kjörbærra manna. Kjörtímabil hans er 4 ár. Staða forseta er að mestu leyti táknræns eðlis en hann er ábyrgðarlaus á stjórnarathöfnum og lætur ráðherra framkvæma vald sitt. Hann veitir formönnum stjórnmálaflokka umboð til stjórnarmyndunar eftir kosningar til Alþingis og skipar ráðherra en oftast er þessu ferli í raun stýrt af stjórnmálaflokkunum sjálfum, aðeins þegar þeir geta ómögulega komist að niðurstöðu sjálfir nýtir forsetinn sér þetta vald og skipar sjálfur ríkisstjórn. Þetta hefur þó ekki gerst í sögu lýðveldisins en gerðist 1942 þegar Sveinn Björnsson, þáverandi ríkisstjóri Íslands, skipaði utanþingsstjórn. Deildar meiningar eru um raunveruleg völd forsetans, þá sérstaklega hvort hann geti neitað að skrifa undir lög og hvort slíkur gjörningur hafi einhverjar afleiðingar. Í stjórnarskránni er sagt að slík synjun kalli á þjóðaratkvæðagreiðslu um lögin, en hinsvegar lætur forseti ráðherra framkvæma vald sitt og eru margir á þeirri skoðun að það gildi um þetta vald eins og önnur völd forseta. Núverandi forseti er Ólafur Ragnar Grímsson, sem tók við embættinu árið 1996. Alþingi, löggjafarþing Íslands, starfar í einni deild. 63 þingmenn þess eru kjörnir hlutfallskosningu í 6 kjördæmum. Kjörtímabilið er 4 ár en getur verið styttra ef það kemur til þingrofs en vald til að rjúfa þing liggur hjá ríkisstjórninni. Ráðherrar eiga einnig sæti á Alþingi en hafa ekki atkvæðarétt nema þeir séu einnig þingmenn en sú er reyndar venjan. Alþingi velur sér forseta til að hafa yfirumsjón með fundum þess, núverandi forseti Alþingis er Sólveig Pétursdóttir. Ríkisstjórnir á Íslandi eru nánast ávallt samsteypustjórnir tveggja eða fleiri flokka en einnig eru dæmi til um minnihlutastjórnir, einkum og sér í lagi vegna þess að enginn flokkur hefur hlotið hreinanmeirihluta á þingi, í það minnsta ekki frá endurreisn lýðveldis. Núverandi ríkisstjórn er samsteypustjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks undir forystu Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra.

Skipting í stjórnsýsluumdæmi

Kjördæmi

Íslandi er skipt upp í 6 kjördæmi sem kjósa sína fulltrúa á Alþingi.

Sveitarstjórn

Íslandi er skipt upp í 104 sveitarfélög sem eru mikilvægustu stjórnsýslueiningar landsins og hafa víðtæk völd á sviði skólamála, skipulags, samgangna og félagsmála.

Sýslur

Íslandi hefur frá fornu fari verið skipt upp í sýslur til umboðsstjórnar. Hinar gömlu landfræðilegu sýslur eru ekki lengur formlegar stjórnsýslueiningar á Íslandi, sýslumenn eru ennþá við lýði en umdæmi þeirra fylgja ekki alltaf gömlu sýsluskiptingunni.

Landafræði

sýslumenn Ísland er staðsett á heitum reit á Atlantshafshryggnum. Þar eru mörg virk eldfjöll (sjá eldfjöll Íslands) og ber þar helst að nefna Heklu. Um það bil 10% eyjarinnar er undir jöklum. Á Íslandi eru hverir víða, og gnótt jarðhita færir íbúunum heitt vatn, sem meðal annars er notað til húshitunar. Eyjan er vogskorin, og flestir bæir standa við firði, víkur og voga. Helstu þéttbýlisstaðir eru höfuðborgin Reykjavík, Keflavík, þar sem einn af alþjóðlegum flugvöllum landsins er staddur, og Akureyri. Ísland liggur á tveimur jarðskorpuflekum, Norður-Ameríkuflekanum og Evrasíuflekanum. Landið telst sögulega til Evrópu.

Efnahagsmál

Efnahagur þjóðarinnar byggir enn að talsverðu leyti á fiskveiðum, sem afla nær 40% útflutningstekna og veita 8% vinnandi manna störf. Þar sem aðrar náttúruauðlindir skortir (fyrir utan jarðhita og fallvötn til virkjunar), er efnahagslíf á Íslandi viðkvæmt og háð heimsmarkaðsverði á fiski og sjávarafurðum. Auk þess geta minnkandi fiskstofnar í efnahagslögsögu landsins haft töluverð áhrif á sveiflur í efnahagslífinu og heimsmarkaðsverð á áli og kísilgúri sem eru stærstu útflutningsvörur Íslendinga á eftir sjávarafurðum. Stjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, sem hefur setið við stjórnartaumana frá 1995, hefur á stefnuskránni að draga úr ríkisumsvifum og fjárlagahalla með því að takmarka erlendar lántökur ríkisins, halda verðbólgu í skefjum, endurskoða sjávarútvegs- og landbúnaðarstefnu, auka á fjölbreytileika í atvinnulífinu og að einkavæða ríkisfyrirtæki. Ríkisútgjöld, sem hlutfall af þjóðarframleiðslu, hafa þó vaxið síðustu ár. Núverandi ríkisstjórn er andvíg inngöngu í Evrópusambandið, sérstaklega vegna ótta við að missa völdin yfir auðlindum hafsins. Fjölbreytileiki í efnahagslífinu hefur aukist undanfarna tvo áratugi. Ferðamannaþjónusta verður æ fyrirferðameiri, og reyna Íslendingar að lokka til sín útlendinga með auglýsingum um hreina og ómengaða náttúru og öflugt næturlíf. Nokkuð dró úr hagvexti á árunum 2000 til 2002, en árið 2002 var hann neikvæður um 0,6%, frá 2003 hefur hagvöxtur hins vegar verið drjúgur.

Lýðfræði

Íslendingar eru í megindráttum norræn þjóð. Landið byggðist upphaflega norrænum mönnum, einkum frá Noregi og Keltum frá nýlendum víkinga á Bretlandseyjum og Íslendingar hafa í gegnum tíðina átt mest samskipti við helstu fiskveiðiþjóðir á Norður-Atlantshafi. Til er kenning um að Íslendingar séu að uppruna sérstakur þjóðflokkur, aðgreindur frá öðrum þjóðflokkum á norðurlöndum („Herúlakenningin“). Á síðari tímum hafa ýmsar kenningar um uppruna þjóðarinnar verið settar fram með erfðafræðilegum rökum. Þá er talað um að flestar konur sem hingað komu hafi verið keltneskar (flestar ambáttir) en karlarnir að miklu leyti norrænir. Íbúafjöldi landsins sveiflaðist á milli um 30.000 og 80.000 við hefðbundinn efnahag í bændasamfélagi fyrri alda. Á 19. og 20. öld hefur Íslendingum fjölgað nokkuð ört og nú eru íbúar landsins tæp 300.000 auk nokkurra þúsunda af íslenskum uppruna sem ekki eru búsett á Íslandi. Á Íslandi er töluð íslenska, sem er norrænt tungumál, og flestir íbúar landsins eru í hinni lúthersk-evangelísku þjóðkirkju.

Menning

Þekktir Íslendingar

Frá miðöldum


- Eiríkur rauði
- Leifur Eiríksson

Tónlistarmenn og hljómsveitir


- Björk Guðmundsdóttir
- Quarashi
- Sigur Rós

Rithöfundar


- Arnaldur Indriðason
- Halldór Laxness
- Snorri Sturluson

Edduverðlaunin

Árlega eru veitt verðlaun fyrir afrek liðins árs í kvikmyndagerð á Íslandi. Verðlaunin, sem eru einhvers konar stæling á Óskarsverðlaununum bandarísku, eru kölluð Edduverðlaunin.

Tenglar


- [http://www.althingi.is/ Alþingi]
- [http://www.raduneyti.is Ríkisstjórnin]
- http://www.iceland.org/
- http://www.iceland.is/
- http://www.islandsmyndir.is/ Flokkur:Rangnefni als:Island fiu-vro:Island' ja:アイスランド ko:아이슬란드 ms:Iceland simple:Iceland th:ประเทศไอซ์แลนด์ zh-min-nan:Peng-tē

Akureyri

:Sveitarfélagið Akureyrarkaupstaður nær einnig yfir Hrísey, þessi grein fjallar þó einungis um Akureyrarbæ. Akureyri er bær í Eyjafjarðarsýslu á Íslandi og er vestan Eyjafjarðar við botn hans. Þar bjuggu 16.048 manns þann 1. desember 2003. Akureyrarbær er fjórða fjölmennasta sveitarfélag Íslands og það fjölmennasta utan höfuðborgarsvæðisins.

Saga bæjarins

Landnámabók greinir frá því að fyrsti landneminn á svæðinu var Helgi „magri“ Eyvindarson sem kom þangað á 9. öld. Elstu heimildir um nafnið Akureyri eru þó frá 1526 en þá féll dómur á staðnum yfir konu fyrir að hafa sængað hjá karli án þess að hafa giftingarvottorð. Á 17. öld tóku danskir kaupmenn að reisa búðir sína á sjálfri Akureyri sem var ein af nokkrum eyrum sem sköguðu út í Pollinn. Þeir völdu staðinn vegna afbragðs hafnarskilyrða og einnig vegna þess að héraðið er og var gjöfult landbúnaðarsvæði en dönsku kaupmennirnir sóttust einkum eftir ull og kjöti. Dönsku kaupmennirnir bjuggu þó ekki á Akureyri allt árið á þessum tíma heldur læstu þeir húsum sínum og yfirgáfu staðinn yfir vetrartímann. Árið 1778 var fyrsta íbúðarhúsið reist á staðnum og varanleg búseta hófst. 8 árum síðar fékk bærinn kaupstaðarréttindi ásamt fimm öðrum bæjum á Íslandi. Þetta var að undirlagi Danakonungs en hann vildi reyna að efla hag Íslands með því að hvetja til þéttbýlismyndunar þar en slíkt var þá nánast óþekkt á landinu. Akureyri stækkaði þó ekki við þetta og missti kaupstaðarréttindin 1836 en náði þeim aftur 1862. Þá hófst vöxtur Akureyrar fyrir alvöru. Bændur í Eyjafirði voru þá farnir að bindast samtökum til að styrkja stöðu sína gagnvart dönsku kaupmönnunum, uppúr því varð Kaupfélag Eyfirðinga (KEA) stofnað. KEA átti mikinn þátt í vexti bæjarins, á vegum þess voru rekin mörg iðnfyrirtæki í bænum sem mörg sérhæfðu sig í úrvinnslu landbúnaðarafurða. Á síðasta áratug 20. aldar tók Akureyri miklum breytingum, framleiðsluiðnaðurinn sem hafði verið grunnurinn undir bænum lét töluvert á sjá og KEA dró verulega úr umsvifum sínum. Meiri umsvif í verslun og þjónustu, ferðamannaiðnaði, sjávarútvegi og Háskólinn á Akureyri hafa nú komið í stað iðnaðarins að miklu leyti.

Staðhættir

Akureyri stendur í botni Eyjafjarðar við Pollinn en svo er sjórinn milli Oddeyrar og ósa Eyjafjarðarár kallaður. Í gegnum bæinn rennur Glerá sem aðskilur Glerárhverfi (Þorpið) frá öðrum bæjarhlutum. Önnur hverfi bæjarins eru Oddeyri, Brekkan, Naustahverfi, Innbærinn og Miðbær.

Atvinnuvegir

Helstu atvinnuvegir bæjarbúa eru verslun og þjónusta, framleiðsluiðnaður, sjávarútvegur og opinber þjónusta. Í bænum er Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, næststærsta sjúkrahús landsins (á eftir Landsspítala Háskólasjúkrahúsi); tveir stórir framhaldsskólar (MA og VMA) og háskóli. Hlutur framleiðsluiðnaðar í atvinnulífi í bænum hefur minnkað mikið síðustu 15-20 árin, en á móti hefur sjávarútvegur vaxið og í dag hafa tvö stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins, Brim og Samherji þar höfuðstövar.

Tenglar


- [http://www.akureyri.is Vefsíða Akureyrarbæjar]
- [http://www3.akureyri.is/media/vefmyndir/akureyri/pdf/kortak2003.pdf Kort af Akureyri] Flokkur:Akureyri Flokkur:Aðsetur sýslumanna á Íslandi Flokkur:Sveitarfélög Íslands

°C

Celsíus (táknað °C eða ℃ (U+2103 í Unicode)) er hitakvarði nefndur eftir Anders Celsius sem skilgreindi hann upprunalega ár1742, hann er nú skilgreindur þannig að 0,01 °C samsvarar þrípunkti vatns og ein gráða á celsíus er 1/273,16 af muninum milli alkuls og þrípunkt vatns, þessi skilgreining var tekin upp ár1954 á 10. fundi Conférence Générale des Poids et Mesures, en á honum var kelvineiningin einnig skilgreind. Upprunalega var þó kvarðinn skilgreindur þannig að 100 °C samsvöruðu frostmarki vatns og 0 °C samsvöruðu suðumarki þess við, bæði við staðalþrýsting, þessu var breytt árið 1747 og kvarðanum snúið við þannig að 0 °C samsvöruðu frostmarkinu og 100 °C suðumarkinu. Flokkur:Hitakvarðar Flokkur:SI-ættaðar einingar ja:セルシウス度 ko:섭씨 zh-min-nan:Liap-sī

Flokkur:Febrúar

Flokkur:Dagatal

The Pesties

The Adventures of Elmo in Grouchland was the second movie based on the characters of the children's television series Sesame Street (after 1985's Follow That Bird). It co-starred Mandy Patinkin and Vanessa Williams. This film was produced by Jim Henson Pictures, and originally released in movie theates by 1999.

The Pesties

The Pesties, named M'Lady, Little Ricky, Tanya, Lyle, Howard and Sydney, are the willing minions of Bug and Huxley in the movie. They always do what they're asked but with their own particular sense of style. They sing, dance, do lots of grunt work—but mostly they love to sunbathe. It's hard to tell just how long they've been with Huxley, but as long as the food is good, they'll probably hang around.

Voice cast


- Kevin Clash - Elmo
- Fran Brill - Zoe
- Jerry Nelson - Count von Count
- Carmen Osbahr - Rosita
- Martin P. Robinson - Telly Monster
- David Rudman - Baby Bear
- Caroll Spinney - Big Bird, Oscar the Grouch
- Steve Whitmire - Ernie
- Frank Oz - Bert, Grover, Cookie Monster

External links


- Adventures of Elmo in Grouchland, The Adventures of Elmo in Grouchland, The Adventures of Elmo in Grouchland, The Adventures of Elmo in Grouchland, The Adventures of Elmo in Grouchland, The Adventures of Elmo in Grouchland, The

Malaga accommodation poker last minute egipt programy p2p tekst










































:: RELATED NEWS ::
Battletoads & Double Dragon: The Ultimate Team
Battle toads & Double Dragon: The Ultimate Team est un beat them all développé par Rare et édité par Tradewest, sorti sur Super Nes, NES, Game Boy et Megadrive en 1993.

ingénieur-architecte qui dessina les plans du Vieux Carré à La Nouvelle-Orléans en Louisiane. Fils d’un avocat de Dieppe en Normandie, Adrien de Pauger est d'abord destiné à la carrière mil

... de la planète Mars
Catégorie:Album musical sorti en 1991 Catégorie:Album de musique Catégorie:Hip-hop Premier véritable album d'IAM, il sera disque d'or quelques années plus tard. C'est déjà un album de qualité, mais on sent que le groupe se cherche encore, comme en attestent quelques tentatives de rap
Nouvelle Gauche
Nouvelle gauche est le courant majoritaire au sein du Mouvement des jeunes socialistes (France). Il fut créé en 1993 lors de la conquête de l’autonomie du MJS vis-à-vis du Parti socialiste alors dirigé par Michel Rocard. Nouvelle Gauche est également un groupe politique qui se veut ancré à la gauche du chinois d'influence locale qui veille à la façon d'un fonctionnaire sur le bien-être des habitants. Il en existe ainsi autant que de communautés territoriales, certains gouvernant des lieux non habités tels que des surfaces de culture ou des cimetières. Il est vu comme un administrateur bienveillant et intègre, d'où son titre officiel de « Dieu juste [garant] du bonheur et de la vertu » Fudezhengshen 福德正神. O
Wang Shuo
Wang Shuo est un écrivain chinois né en 1958 a Nanjing. .

Biographie

Né en 1958 a Nanjing, Wang Shuo est diplomé du Lycée N. 44 de Beijing en 1976. Il passe alors quatre années dans la Marine, apres quoi il travaille dans une pharmacie, et entame une série de petits boulots miteux, tout en commencant a écrire. En 1983, il quitte son travaille et devient un écrivain indépendant a plein temps ; son premier livre intitulé "L'hotesse de l'Air
All Rights Reserved 2005 wikimiki.org