:: wikimiki.org ::
| Jakob VI Skotakonungur |
Jakob VI Skotakonungur]
Jakob VI Skotakonungur eða Jakob I konungur Englands, Írlands og Skotlands frá 1603 (Karl Jakob, enska: Charles James) (19. júní 1566 – 27. mars 1625) var fyrstur til að sameina undir einn konung öll konungsríkin þrjú á Bretlandseyjum þegar hann tók við völdum eftir lát Elísabetar I. Hann var fyrsti enski konungurinn af Stúartættinni.
Jakob var sonur Maríu Stúart Skotadrottningar. Hann giftist 1590 Önnu af Danmörku, systur Kristjáns IV Danakonungs.
Flokkur:Konungar Skotlands
Flokkur:Konungar Englands
Flokkur:Konungar Írlands
ja:ジェームズ1世 (イングランド王)
EnglandEngland er stærst og fjölmennast þeirra svæða sem mynda Bretland. Hin svæðin eru Wales, Skotland og Norður-Írland, England á landamæri að Skotlandi í norðri og Wales í vestri en er annars umkringt Norðursjó, Ermasundi og Írlandshafi. Nafnið er dregið af „englum“ sem er heiti germansks ættflokks frá Slésvík eða þar í kring sem fluttist til Englands ásamt Söxum á 5. og 6. öld. Fjölmennasta borg Englands og reyndar Stóra Bretlands alls er London, hún er einnig höfuðborg Bretlands. Aðrar stórar borgir eru Birmingham, Manchester, Liverpool, Leeds, Nottingham, Sheffield, Bristol og Bradford.
ja:イングランド
ko:잉글랜드
ms:England
simple:England
th:แคว้นอังกฤษ
zh-min-nan:England
Skotland
Skotland (gelíska: Alba) er nyrsti og næststærsti hluti Bretlands (hinir hlutarnir eru England, Wales og Norður-Írland). Það hefur eigið þing og heimastjórn frá árinu 1999.
Skotland var sjálfstætt konungsríki þar til það gekk í konungssamband við England og Írland þegar Jakob VI Skotakonungur tók við af Elísabetu I árið 1603. Skoska þingið var lagt niður 26. mars 1707 og Skotland var formlega sameinað Bretlandi með bresku sambandslögunum 1. maí sama ár þegar Breska konungdæmið var stofnað með eitt þing í Westminster í London. Skoska þingið var svo endurreist í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1999. Það hefur þó ekki völd í utanríkismálum.
als:Schottland
ja:スコットランド
ko:스코틀랜드
ms:Scotland
simple:Scotland
1603
Á Íslandi
- Veturinn var nefndur píningavetur.
Fædd
Dáin
Erlendis
- 24. mars - Jakob VI Skotakonungur, sonur Maríu Stúart, verður konungur Englands og Írlands og sameinar fyrstur ríkin þrjú undir einn konung.
Fædd
Dáin
- 24. mars - Elísabet I drottning Englands og Írlands (f. 1533).
Flokkur:1603
Flokkur:1601-1610
ko:1603년
nb:1603
simple:1603
Enska
Enska (enska: English; ) er vestur-germanskt tungumál sem á rætur að rekja til margra tungumála, þá sér í lagi latínu, forn-norrænu, grísku, og keltnesku.
Enska er töluð víða í heiminum, og er opinbert mál á Englandi, Írlandi, Skotlandi, Wales, Nýja Sjálandi, Ástralíu, Suður-Afríku, Bandaríkjunum, Kanada og nokkrum öðrum löndum.
Þróunarsögu ensku er skipt í þrjú tímabil. Elst er forn-enska (Old English), sem er einnig kölluð engilsaxneska eftir hinum germönsku Englum og Söxum sem réðu ríkjum á Englandi frá 5. öld og fram á víkingaöld. Mið-enska var töluð eftir komu víkinga og fram að þeim tíma þegar prentsmiðjur urðu algengar. Eftir tilkomu prentsmiðjanna hefur verið talað það mál sem við þekkjum nú (nútímaenska).
Dæmi um ensku
Forn-enska er töluvert líkari íslensku en nútímaensku, eins og sjá má á þessu ljóðbroti úr Bjólfskviðu frá 8. öld:
:Ða se ellengæst earfoðlice
:þrage geþolode, se þe in þystrum bad,
:þæt he dogora gehwam dream gehyrde
:hludne in healle; þær wæs hearpan sweg,
:swutol sang scopes. Sægde se þe cuþe
:frumsceaft fira feorran reccan,
:cwæð þæt se Ælmihtiga eorðan worhte,
:wlitebeorhtne wang, swa wæter bebugeð,
:gesette sigehreþig sunnan ond monan
(Úr ljóðinu um óvættinn Grendel)
Þegar þetta er borið saman við nýrri ensk verk má sjá hversu hratt enskan fjarlægist íslenskuna:
:Ich was in one sumere dale,
:in one suthe diyhele hale,
:iherde ich holde grete tale
:an hule and one niyhtingale.
(Úr „The Owl and the Nightingale“, skrifað c.a. 1260)
Svo eru nútímaverkin öllu líkari því sem við þekkjum í dag. Þetta dæmi er eftir Jonathan Swift, sem þekktastur er fyrir að hafa skrifað Ferðir Gúllívers á 18. öld:
:I shall now therefore humbly propose my own thoughts, which I hope will not be liable to the least objection.
En ögn eldri dæmi um nútíma ensku koma upp um fortíð málsins, eins og sést hér í broti úr „Fönixinn og skjaldbakan“ eftir William Shakespeare (c.a. 1586)
:Let the bird of lowdest lay,
:On the sole Arabian tree,
:Herauld sad and trumpet be:
:To whose sound, chast wings obay.
:But thou, shriking harbinger,
:Foule precurrer of the fiend,
:Augour of the fevers end,
:To this troupe come thou not neere.
Notkun í nútímanum
Sökum mikillar útbreiðslu enskunnar og töluverðrar innbyrðis einangrunar mælanda þess, hafa orðið til margar mismunandi mállýskur sem hafa einkennandi raddblæ, framburð og orðaforða. Til dæmis eru til mörg orð í ástralskri ensku sem að enginn í Kanada myndi nota í daglegu máli, og öfugt.
Til þess að sporna við þessari þróun hóf Oxford háskólinn útgáfu á Oxford English Dictionary, sem talin er vera yfirgripsmesta nútíma enska orðabókin. Hún var fyrst gefin út árið 1884, en hefur síðan þá verið stækkuð mjög til þess að ná yfir allar helstu orðmyndir sem koma fyrir í málinu allt aftur til upphafs nútímaensku.
Tenglar
Flokkur:Germönsk tungumál
als:Englische Sprache
ja:英語
ko:영어
ms:Bahasa Inggeris
simple:English language
th:ภาษาอังกฤษ
zh-min-nan:Eng-gí
1566
Á Íslandi
Fædd
Dáin
- 3. maí - Poul Stigsen (Páll Stígsson), hirðstjóri.
Erlendis
- Trúaruppþot í Hollandi marka upphafið að Áttatíu ára stríðinu milli Hollands og Spánar.
Fædd
- 19. júní - Jakob VI Skotakonungur (d. 1625).
Dáin
- 1. júlí - Nostradamus, franskur stjörnuspekingur (f. 1503).
Flokkur:1566
Flokkur:1561-1570
1625
Á Íslandi
- Veturinn var kallaður svellavetur.
- Fyrsta galdrabrennan á Íslandi. Jón Rögnvaldson brenndur á Melaeyrum í Svarfaðardal.
- 2. september - Eldgos varð í Kötlu.
Fædd
Dáin
Erlendis
- 27. mars - Karl I verður konungur Englands, Írlands og Skotlands.
- 9. maí - Danir hefja þátttöku í Þrjátíu ára stríðinu þegar Kristján IV ræðst með her inn í Þýskaland.
Fædd
- 17. júní - Peder Hansen Resen, danskur sagnfræðingur (d. 1688).
- 18. júní - Giovanni Domenico Cassini, ítalskur stjörnufræðingur og verkfræðingur (d. 1712).
Dáin
- 27. mars - Jakob I, konungur Englands, Írlands og Skotlands (f. 1566).
- 5. júní - Orlando Gibbons, enskt tónskáld (f. 1583)
Flokkur:1625
Flokkur:1621-1630
ko:1625년
nb:1625
Bretlandseyjar
Bretlandseyjar eru eyjaklasi í Norður-Atlantshafi úti fyrir strönd meginlands Evrópu. Helstu eyjarnar eru Stóra-Bretland (sem skiptist milli Englands, Skotlands og Wales), Írland og margar fleiri minni eyjar. Samtals eru eyjarnar yfir sex þúsund talsins og eru samtals 315.134 km² að flatarmáli.
Listi yfir Bretlandseyjar
- Stóra-Bretland
- Norðureyjar (þ.m.t. Orkneyjar, Hjaltlandseyjar og Friðarey)
- Suðureyjar (innri og ytri Suðureyjar og smærri eyjar)
- Eyjarnar í Clyde-firði (þ.m.t. eyjarnar Arran og Bute)
- Öngulsey
- Lundey
- Scillyeyjar
- Wight
- Lindisfarne
- Írland
- Ulster: Rathlin-eyja, Arranmore, Tory-eyja
- Connacht: Achill-eyja, Clew Bay-eyjar, Inishturk, Inishbofin, Inishark, Aran-eyjar
- Munster: Blasket-eyjar, Valentia, Cape Clear, Sherkin-eyja, Great Island
- Leinster: Lambey
- Mön
- Ermarsundseyjar
- Rockall
ja:ブリテン諸島
ko:영국 제도
Elísabet I
Elísabet I (7. september 1533 – 14. mars 1603) var drottning Englands og Írlands frá 17. nóvember 1558 til dauðadags. Hún var kölluð meydrottningin. Elísabet I var fimmti og síðasti einvaldur Túdorættarinnar, eftir að hafa tekið við af hálfsystur sinni Maríu I. Ríkisár hennar einkenndust af einu mesta trúarbragðaumróti í sögu Englands.
Valdatími Elísabetar er kallaður Elísabetartímabilið eða gullöldin í sögu Englands þar sem hann einkenndist af auknum styrk og áhrifum Englendinga um allan heim.
Flokkur:Enskir þjóðhöfðingjar
ja:エリザベス1世 (イングランド女王)
simple:Elizabeth I of England
1590
Á Íslandi
Fædd
Dáin
Erlendis
- 17. maí - Anna af Danmörku, kona Jakobs VI, krýnd Skotadrottning.
Fædd
Dáin
Flokkur:1590
Flokkur:1581-1590
Kristján IV]]
Kristján IV (12. apríl 1577 – 28. febrúar 1648) var kjörinn konungur Danmerkur, Noregs og Íslands af Ríkisráðinu eftir lát föður síns Friðriks II árið 1588, þá aðeins ellefu ára gamall, en var fyrst krýndur þegar hann varð fullveðja 1596. Stjórnartíð hans einkenndist til að byrja með af friði og efnahagslegum uppgangi. Efnahagsstefna hans var í anda kaupauðgisstefnunnar og hann kom á verslunareinokun innan ríkis síns, þótt því væri ekki fylgt hart eftir. Á tímabilinu voru mikil átök við Svía vegna tilrauna þeirra til að koma undir sig Skáni og komast undan Eyrarsundstollinum, helstu tekjulind Danakonunga. Síðustu tvo áratugina fengu Danir svo að kynnast slæmum ósigrum, bæði á orrustuvöllunum í Þýskalandi í Þrjátíu ára stríðinu og í sjóorrustum á Eystrasalti. Kristján var mágur Jakobs VI Skotakonungs og átti töluverð samskipti bæði við hann og fyrirrennara hans, Elísabetu I, meðal annars um veiðar enskra duggara á Íslandsmiðum, sem voru mjög umfangsmiklar, bæði á 16. öld og fyrri hluta 17. aldar. Kristján hafði gríðarlegan áhuga á sjóferðum og sjóhernaði og í stjórnartíð hans eignuðust Danir fyrstu nýlendu sína í Austur-Indíum, Trankebar.
Fjölskylda
Kristján var þriðja barn og elsti sonur Friðriks II Danakonungs af Aldinborgarætt, og konu hans Soffíu af Mecklenburg. Hann giftist árið 1597 Önnu Katrínu af Brandenburg og átti með henni sex börn, þar á meðal ríkisarfann. Fyrir lát hennar 1612 átti hann einn son með Karen Madsdatter. Eftir lát drottningar giftist hann Karen Andersdatter sem ól honum tvö börn, og að síðustu átti hann tólf börn með Kirsten Munk, þar á meðal Leonóru Kristínu sem eyddi síðar tólf árum í Bláturni fyrir drottinsvik í stjórnartíð hálfbróður síns. Konungur skildi síðan við Kirsten Munk, sem var ákærð fyrir framhjáhald og bjó eftir 1629 með Vibeke Kruse sem ól honum tvö börn.
Flokkur:Danakonungar
Flokkur:Konungar Íslands
Flokkur:Þrjátíu ára stríðið
Flokkur:Konungar EnglandsFlokkur:Englendingar
Flokkur:Konungar ÍrlandsFlokkur:Írar Kategori:Ungerska musikerKategori:Musiker efter nationalitet
Kategori:Ungrare
ko:분류:헝가리의 음악가
accommodation in valencia wycieczki szkolne wycieczki szkolne xsongs.info Baby names
|
|
|
| :: RELATED NEWS :: |
راهآهن
]
راه آهن یا ترابری ریلی یک روش ترابری هدایت شده زمینی است. راه آهن برای قطارها طراحی شده تا بدینوسیله بتوان مسافر و کالا جابجا کرد. راه آهن دو ریل همراستا دارد که معمولاً از فولاد است.
|
راه آهن سرتاسري ايران
راه آهن سرتاسری ایران نام راه آهنی است که در زمان پادشاهی رضا شاه پهلوی از جنوب تا شمال ایران کشیده شد.
ساختمان راه آهن سرتاسری ایران در 23 مهر 1306 آغاز شد و در 3 شهریور 1317 به پایان رسید. این راه آهن بندر شاهپور (سس را در تهیه انواع دیگر سسها به کار می برند، از جمله سس مورنی که از مخلوط سس بشامل با پنیر بدست میآید. سس بشامل یکی از سسهای اصلی کشور فرانسه محسوب میشود که امروزه برای تهیه آ
|
یاشا هایفتز
یاشا هایفتز اغلب به عنوان بزرگترین ویلننواز جهان و اعجوبه ویلن سده بیستم نامیده شده است.
زندگی
یاشا هایفتز در دوم فوریه 1901 در "ویلنا"ی روسیه به دنیا آمد و در 83 سال از 86 سال عمر خود به نوازندگی ویولن پرداخت. او درآغا
|
تالار کارنگی
تالار کارنِگی نام یکی از تالارهای معروف و بزرگ اجرای کنسرت واقع در محله مَنهَتَن شهر نیویورک است. این تالار را از بهترین تالارهای
عزیز نسین (۱۹۱۵-۱۹۹۵) طنزنویس فقید ترکیهای است. نام او به هنگام تولد محمت نصرت بو
|
فهرست مشاهیر ترکیه
نویسندگان:
- عزیز نسین
- اورهان پاموک
- یاشار کمال
- ضیاء گوکالپ
- Read More... |
آتاترک
مصطفی کمال پاشا (معروف به آتاترک) درسال ۱۸۸۰ میلادی در شهر [http://www.thessalonikicity.gr/English/index.htm تسالونیک] در شمال یونان فعلی، که در آن زمان جزئی از امپراتوری عثمانی بود، به دنیا آمد. در ابتدا وارد ارتش Read More... |
|